sunnudagur, júlí 26

Bókapistill

Ég er búin að vera nokkuð dugleg við lestur það sem af er árinu. Hér er yfirlitið:

1. Pillars of the Earth eftir Ken Follet.
Ég var búin að gera tvær tilraunir til þess að hlusta á hljóðbókina en ég virðist bara engan veginn geta haldið athygli yfir hljóðbókum (en hins vegar get ég hlustað á útvarpsþætti á podcast...). Á endanum fékk ég bókina lánaða hjá Stínu og sökkti mér í hana yfir jólin heima. Fyrstu helgina sem ég kom aftur út til New York eyddi ég að mestu leyti við lestur til þess að klára síðustu 400 blaðsíðurnar. Ég hafði mjög gaman að henni þegar ég gat loksins einbeitt mér að lestrinum. Þetta er svona "epic" skáldsaga - aðalpersónan er munkur sem byggir dómkirkju á miðöldum á Englandi en alls konar fjölskyldusaga og pólitík fléttast inn í atburðina.


2. Dimmar rósir eftir Ólaf Gunnarsson.

Þessa bók fékk ég í jólagjöf frá Hafsteini og Hædu og las hana þegar ég var komin aftur út. Mjög skemmtilegar lýsingar á Reykjavík árið 1968 og einmitt svona saga þar sem eru margar ótengdar persónur sem tengjast svo seinna í sögunni sem mér finnst gaman að. Annars voru persónurnar frekar ýktar og gerðu oft hluti sem mér fundust alveg fáránlegir, ekki beint raunsæ frásögn og ekki nógu ýkt til þess að láta fáránlegheitin ganga upp.


3. Ódáðahraun eftir Stefán Mána.

Keypt í Leifsstöð. Fyrsta bókin sem ég hef lesið eftir Stefán Mána en ég datt algjörlega ofan í Svarta engla um jólin. Bókin er allt í lagi krimmi, svolítið óhugnaleg stundum. Söguþráðurinn er frekar þunnur og hlutabréfafléttan ekkert spes.









4. Myrká eftir Arnald Indriðason.

Keypt í Leifsstöð. Eins og þetta er náttúrulega mikill snilldartitill, þá get ég ómögulega munað hvað bókin var um nema að söguþráðurinn var mjög þunnur og að þetta er sísta bókin hans Arnalds sem ég hef lesið. Svo fannst mér eins og Arnaldur væri að reyna að vera eins og Yrsa með því að gera Elínborgu að aðalpersónunni.








5. A Peope's Tragedy: The Russian Revolution: 1891-1924 eftir Orlando Figes.

Keypt 2005. Las hana á 2gja mánaða tímabili í vor hér í NY, í Barcelona og á vesturströndinni. Frábær bók. Eftir að ég las Natasha's Dance: The Cultural HIstory of Russia eftir sama höfund þá er ég búin að vera á leiðinni að lesa þessa bók. Ég las reyndar 200 blaðsíður í henni fyrir þremur árum en þegar ég tók hana aftur upp í vor þá varð ég að byrja upp á nýtt. Auk þess ákvað ég að mér leyfðist ekki að lesa neitt annað þangað til þessi 900 blaðsíðna doðrantur væri lesinn. Þetta var nú ekki alltaf auðvelt en það hafðist. Figes er frábær penni og viðburðir þessa tíma eru náttúrulega ótrúlegir. En ég verð samt að viðurkenna að Natasha's Dance er betri...


6. Auðnin eftir Yrsu Sigurðardóttur.

Fékk lánaða frá Elínu. Frábær bók! Eina skiptið sem ég svindlaði á rússnesku byltingunni var til þess að lesa þessa bók. Yrsa er pottþétt krimmasigurveigarinn jólin 2008.






7. The Girl with the Dragon Tattoo eftir Stieg Larsson.

Las Menn sem hata konur í enskri þýðingu. Fékk bókina lánaða hjá Elínu, ég hefði ekkert heyrt af þessari bók áður. Las helminginn af bókinni í vélinni eftir að ég fór á Hvannadalshnúk. Frábær! Og nú er hún orðin metsölubók í Ameríku. Get ekki beðið eftir að lesa næstu bók sem kemur út hér á þriðjudaginn.




8. Konur eftir Steinar Braga.

Keypt út í loftið í Leifsstöð. Sko, mér fannst bókin góð. En hún er óhugnaleg. Og mér finnst að jafnvel voða artsí bækur verði samt að hafa einhverja lausn í lokin. Eða kannski er ég of vitlaus til þess að fatta endinn. En Steinar Bragi kann að skrifa það er nokkuð ljóst.





9. Lesarinn eftir Bernhard Schlink.

Þórunn frænka lánaði mér þessa. Hugsanlega besta bókin sem ég hef lesið á árinu. Las hana í íslenskri þýðingu Arthúrs Björgvins Bollasonar sem ótrúlegt en satt var mjög vel unnin. Las bókina í lestinni á leiðinni í brúðkaup á Washington D.C. svæðinu. Var einmitt að lesa þessa bók þegar ég var í D.C. metro lestinni á akkúrat sama stað og varð mikið slys 48 tímum síðar. Er ekki búin að sjá myndina og er ekki viss hvort mig langi til þess. Jú, ætli ég láti nú ekki verða af því.


10. Water for Elephants eftir Sara Gruen.

Fékk lánaða hjá Elínu. Ég las næstum því alla bókina í rútunni á leiðinni frá brúðkaupinu í D.C. Já! That's right. Ég las í rútu í 5 klukkutíma! Þetta er mjög skemmtileg bók sem gerist í sirkus á tímum kreppunnar miklu. Rithöfundurinn vann miklar rannsóknir við undirbúning bókarinnar.



11. Endurance: Shackleton's Incredible Voyage eftir Alfred Lansing.

Ég var að grúska á Amazon og rakst á þessa bók. Ótrúleg sannsöguleg frásögn af heimskautaleiðangri þar sem skipið festist í ís og hópurinn þarf að hafast við í lengri tíma á ísnum og svo ferðast fótgangandi og í litlum bátum til þess að bjarga sér. Og allir lifðu af!



12. The Ice Master: The Doomed 1913 Voyage of the Karluk eftir Jennifer Niven.

Í þessari frásögn er allt akkúrat öfugt við Endurance: Leiðangurinn er við norðurskautið, allt gengur á afturfótunum, hópurinn er illa undirbúinn og leiðangurinn illa skipulagður og þegar skipið festist í ís og hópurinn endar á flakki þá lifa ekki allir af. Og það sem kemur (alla vega Íslendingi) á óvart er hvað Vilhjálmur Stefánsson var óábyrgur við skipulagninguna og fær algjöra falleinkunn. Niven er góður penni og frásögnin er heillandi (enda var ég límd við bókina) en mér fannst það galli hvað persónulýsingarnar eru einhliða, bara svart og hvítt - enda er þetta fyrsta bók konu sem skrifaði áður sjónvarpshandrit.



Jæja, þannig er listinn. Allt góðar bækur myndi ég segja. En það var ekki fyrr en ég skrifaði upp listann að ég áttaði mig á því að ég er ekki búin að fylgja reglunni minni á þessu ári að lesa alltaf inni á milli klassískar bækur, helst af þessum lista hér til þess að vera viss um að ég sé nú að lesa gæðaefni. Sem þýðir að það eru ansi margar "stórar" bækur sem bíða í bunkanum (því ég get ekki farið inn í bókabúð án þess að kaupa bók):

Meistarinn og Margarita
Catcher in the Rye
Catch 2
2 (búin að vera í bunkanum í 4 ár...)
Alkemistinn
Karamazov bræðurni
r (búin að lesa 200 bls en verð að byrja upp á nýtt...)
Cat's Cradle

En...fyrst verða lesnar:

Kleifarvatn eftir Arnald (ekki viss hvernig ég missti af þessari þegar hún kom út)
Lesið í snjóinn eftir Peter Höeg (ætla að lesa hana á ensku, byrjaði á henni á dönsku fyrir nokkrum árum og það gekk bara eki nógu hratt fyrir mig)

...og síðast en ekki síst:

The Girl Who Played with Fire eftir Stieg Larsson (kemur út á þriðjudaginn!)

sunnudagur, júlí 19

Vínsmökkun (fyrir löngu síðan)

Ég ætlaði fyrir löngu síðan að vera búin að skrá hér vínin og ostana sem ég smakkaði á vín- og ostasmökkuninni sem ég fór á með Caroline og Ericu í vor. Áður en ég týni þessu litla plaggi sem geymir þessar upplýsingar þá set ég þetta inn hérna núna, eiginlega helst til þess að ég gleymi ekki þessu öllu... Goes without saying að þetta var allt saman alveg rosalega gott.

Þetta var sem sagt smökkun á vínum og ostum úr Alpafjöllunum.

Vín

1. Kampavín: Jean Gros Crémant du Jura Brut, Frakkland

2. Hvítvín: Livio Felluga Pinot Grigio Collio 2007, Ítalía. Leiðbeinandinn okkar hafði ekkert sérlega mikið álit myndi ég segja á Pinot Grigio

3. Hvítvín: Stadlman "Mandel-Höh" Zierfandler Thermenregion 2006, Austurríki. Kennarinn okkar sagði að þetta væri hálfgert "cult" vín í Austurríki. Passar vel með sterkum mat (indverskum).

4. Hvítvín: Jamek "Stein Am Rain" Gruner Veltliner Federspiel 2007, Austurríki. Gruner Veltliner er sem sagt "it" vínið í dag. Þetta er vínið sem að allir fínustu vínþjónarnir í NY mæta með í partý. "Hvítur pipar" skrifaði ég víst niður sem hluta af lýsingunni. Þetta vín á að passa með öllu.

5. Rauðvín: Hillinger St-Laurent Burgenland 2003, Austurríki. Vínið er mitt á milli pinot noir / Blaufränkisch. St-Laurent vínberið er "native" í Austurríki.

6. Rauðvín: Allegrini "Palazzo della Torre" Veronese 2005, Ítalía.

7. Rauðvín: Produttori del Barbaresco Barbaresco 2005, Ítalía. Þetta vín á ekki að drekka svona snemma. Hún lét okkur bara smakka það svo að við gætum prófað hvernig það væri að smakka það áður en það er tilbúið. Barolo og Barbaresco eru bæði frá sama héraðinu og bæði úr Nebbiolo berinu. "High in tannin and acidity".

8. Hvítvín: 1994 Schloss Schönborn Hochheimer Domdechaney Riesling. Þetta vín var valið til þess að sýna hvað Riesling vín eldast vel.

Ostar

1. Tomme Fleurette (Lausanne, Sviss) (pasteurized cow milk)

2. Forsterkase (Sankt Gallen, Sviss) (thermalized cow milk) - bein þýðing (yfir á ensku): Lumberjack cheese

3. Tilsiter (Vorarlberg, Austurríki) (raw cow milk). Þessi ostur var alveg sérlega góður og passar líka vel með Riesling.

4. Bergkase Alt (Vorarlberg, Austurríki) (raw cow milk). Osturinn er líkur Gruyere, Beaufort, Coute.

5. Montasio. Frá norðvestur Ítalíu, nálægt Slóveníu. Svipaður Manchego

6. Bavarian Blue (Bavaria, Þýskalandi) (pasteurized cow milk)

Veitingastaðurinn í Queens sem er með öll góðu gömlu Barbaresco og Barolo vínin á góðu verði: Manducatis

Vínbúðir í NY
- Crush @ 57th / 3rd
- Chambers Street Wines

Góðir Riesling framleiðendur
- J. J. Prum
- [Dr. Lucent]

Góðir innflytjendur
- Neal Rosenthal
- Joe Dressner
- Robert Chadderton

mánudagur, maí 25

Las Auðnina

Las loksins Auðnina, jólabókina eftir Yrsu. Mjög fín.

laugardagur, maí 23

Tvö löng hlaup í vikunni

Farið að styttast í hálfmaraþonið í næstu viku. Ég er nú ekki í formi til þess að ná tímabætingu en vil alla vega vera viss um að klára svo að ég tók tvö löng hlaup í vikunni

Þriðjudagur
Fór eftir vinnu og hljóp 9.3 mílur (15 km). Hringurinn var upp vesturhliðina, yfir í Central Park, hálfur hringur þar og svo aftur út að vesturhliðina. Fullkomið veður.

Föstudagur
Hljóp 11.1 mílu (tæpa 18 km). Svipaður hringur og á þriðjudaginn, bara bætti aðeins við. Það var heitt og rakt. Nú er komið sumarveður þannig að eftir löng hlaup er maður með saltlag á húðinni!

Útsýnð á West Side a bakaleiðinni

Fleet Week


Tók þessa mynd niðri á bryggjunni hjá íbúðinni minni. Gosbrunnarnir komnir aftur af stað og Intrepid flugmóðurskipið skreytt fyrir Fleet Week

sunnudagur, maí 17

Allt í skralli

Allt fór í háaloft í vinnunni. Sem þýðir að ég lenti í tveggja vikna törn þar sem ég var föst í vinnunni og svaf lítið...og hreyfði mig ekkert...og komst því miður ekki í Bear Mountain hlaupið. Mjög svekkjandi. En við náðum að klára stórt verkefni í vinnunni sem er gott mál.

Svo var ég að komast að því að ræktin mín lokaði fyrir tveimur vikum! Þeir eru búnir að flytja mig í annað útibú en það er bara allt of langt í burtu. Ætla að skipta í annað gym sem er eina blokk í burtu en er ekki búin að ganga frá því. Frekar mikið bögg.

Hljóp 10 kílómetra keppnishlaup svo laugardagsmorgun. Hafði nú ekki ætlað að vera úti langt fram á kvöld á föstudaginn en það fór nú svo að ég kom ekki heim fyrr en klukkan þrjú svo að ég var nú ekki svo fersk þegar ég mætti í hlaupið klukkan hálfníu um morguninn. Hljóp með Allison. Fórum þetta á 55:55 (9 mín per mílu) og fórum hraðar eftir því sem leið á sem ég var bara sæmilega ánægð með miðað við að ég var ekki búin að hreyfa mig í tvær vikur og það var alveg helli helli hellidembu rigning fyrstu tvær mílurnar - og ég meina demba!!! En fremsta manninum tókst samt að slá brautarmetið og hlaupa leiðina a 27:43. Sem þýðir að hann hljóp 10 kílómetrana hraðar en ég hljóp fyrstu 5 kílómetrana!

En það góða er að Eurovision partýið hér var alveg frábært. Var svo heppin að einn bar hérna í hverfinu sýndi keppnina. Staðurinn var smekkfullur af fólki alls staðar að, en þó var sérstaklega mikið af Norðmönnum. Stemmningin var alveg náttúrulega alveg frábær. Kom mér nú frekar á óvart að Ísland skyldi ná upp í 2. sætið en það er náttúrulega bara fínt. Og svo var önnur af söngkonunum úr Bobbysocks á staðnum svo að La det swinge var náttúrulega tekið eftir keppnina - með videoið frá 1985 á skjánum. Algjör snilld!!!

sunnudagur, apríl 26

Van Cortlandt Park

Laugardagur
Prófaði að fara upp í Van Cortlandt Park því þar er víst gott að æfa fyrir trail running. Jú jú, þetta var ágætt en ég verð nú bara að segja það að Central Park stendur alltaf fyrir sínu. Er í raun búin að átta mig á því hvað er í rauninni mikið af hæðum og brekkum i CP sem er gott að æfa - og það tekur mig ekki meira en klukkutíma í lestinni að komast þangað!

En alla vega, ég fór alls 6 mílur í Van Cortlandt Park (10km). Brekkurnar tóku vel í, sérstaklega þar sem ég var nú með harðsperrur í kálfunum fyrir, þannig að ég gekk nú hluta af tímanum. Þetta var allt í lagi.

Sunnudagur
Fór í Central Park. Nú tek ég miklu meira eftir öllum brekkunum sem ég hef aldrei einhvern veginn einu sinni tekið eftir. En já þetta var bara svona lala morgunn. Ég ætlaði að vera súper dugleg og fara erfiðustu brekkuna nokkrum sinnum en endaði á því að fara bara stóra hringinn sem er 6 mílur (10km) og varð aftur að ganga hluta eins og í gær.

Þannig að ég hvíldi bara vel eftir daginn. Er mest megnis bara búin að vera heima og tekið því rólega. Á morgun verður algjör hvíld. Engin hlaup, ekkert sund, ekkert hjól, engar tröppur. Bara hvíld.


Myndir úr Van Cortlandt Park




laugardagur, apríl 25

Smá svindl

Á hvíldinni í dag...

Labbaði niður af 43. hæð í dag þegar ég fór úr húsi.
(Tók svo reyndar lyftu upp á 37. hæð í vinnuna því ég var orðin sein)
Gekk svo niður af 37. hæð við lok dags.
Gekk upp á 43. hæð þegar ég kom heim.

Allt á rólegu tempói. En hjartslátturinn fer náttúrulega á fullt þegar ég labba upp...

Úff, nú verður æft stíft um helgina í 30 gráðu hita.